
Bátahöllin

Fyrirtækið var stofnað í byrjun árs 1998 af Viðari P. Hafsteinssyni til að sinna breytingum og viðgerðum á plastbátum sem eru allt frá því að vera smá viðgerðir uppí allt að 90% nýsmíði. Fyrirtækið er einnig í framleiðslu á plasttoppum á húsbíla og sér um ásetningu þeirra. Af fenginni þekkingu og reynslu af breytingum á fjölda bátum var ákveðið að sameina sem flesta kosti í einn bát. Það var svo í ágúst 2002 að teikningar lágu fyrir og hafin var smíði á fyrstu nýsmíði Bátahallarinnar sem fékk nafnið ”Björn “ ekki voru mótin fullbúin þegar fyrir lágu samningar um þrjá báta.
Höfn í höfn er þjónusta sem við bjóðum uppá og hafa margir nýtt sér hana. Hún felst í því að við tökum við bátnum í Rifshöfn og vinnum það verk sem óskað hefur verið eftir, það er upptöku, hönnun, teikningar, breytingar, vélaniðursetningar, raflagnir, járnavinnu, uppsetningu á spilkerfum, spilum og margt fleira. Síðan er báturinn afhentur aftur í Rifshöfn.
Starfsmenn
Viðar Páll Hafsteinsson
Framkvæmdastjóri