Byggðasafn Reykjanesbæjar

Byggðasafn Reykjanesbæjar - Safnið um sögu bæjarins. Byggðasafn Reykjanesbæjar er safn um sögu þess svæðis sem bæjarfélagið nær yfir. Saga svæðisins einkennist af mannlífi sem tengdist sjósókn og fiskverkun og síðar sögu Keflavíkurflugvallar. Safnið á og hefur umsjón með þremur húsum, Vatnsnesi í Keflavík, Njarðvík í Innri Njarðvík og Stekkjarkoti á Njarðvíkurfitjum. Þau tvö síðasttöldu eru útbúin sem heimili frá fyrrihluta 20. aldar. Byggðasafnið samanstendur af munasafni, mest frá 19. og aðallega 20. öld, ljósmyndasafni og hreyfimyndasafni. Innan vébanda Byggðasafnsins eru Íþróttaminjasafn Reykjanesbæjar. Aðalsýningasalur safnsins er í Duushúsum, þar er nú sýningin Á vertíð sem var opnuð 2. júní 2012. Í Duushúsum má einnig sjá úrval sjóminja og mynda tengdum sjósókn úr safneign Byggðasafnsins. Aðalstöðvar safnsins og varðveisluhús eru í Rammanum, Seylubraut 1, Innri Njarðvík

Starfsmenn

Sigrún Ásta Jónsdóttir

Forstöðumaður
sigrun.a.jonsdottir@reykjanesbaer.is
c