Mynd af Tónlistarskólinn í Grafarvogi

Tónlistarskólinn í Grafarvogi



Tónlistarskólinn í Grafarvogi var stofnaður 1991 af Sigríði Árnadóttur tónmenntakennara og skólastjóra skólans og Wilmu Young fiðlukennara.

Hlutverk og markmið

Meginmarkmið Tónlistarskólans í Grafarvogi er að veita almenna tónlistarfræðslu, efla vitund og þekkingu barna á tónlist og auka almenna tónlistariðkun. Markmiði sínu hyggst skólinn ná með því að:

  • Halda uppi kennslu í sem flestum greinum tónlistar, eftir því sem aðstæður leyfa hverju sinni.
  • Búa nemendum fjölbreytt skilyrði til að þroska tónlistarhæfileika sína og sköpunargáfu.
  • Leggja áherslu á félagslegt gildi tónlistariðkunar með ýmiskonar samleik.
  • Gefa nemendum tækifæri á að koma sem oftast fram bæði innan skólans sem utan.
  • Búa nemendur undir áframhaldandi nám í tónlist.

Í aðalnámskrá segir að tónlistarskólar gegni fjölbreyttu hlutverki í samfélaginu. Þeim beri að stuðla að öflugu tónlistarlífi jafnframt því að vinna að aukinni hæfni, þekkingu og þroska einstaklingsins. Skólanum ber að taka tillit til mismunandi áhugasviða, getu og þroska nemenda sinna. Kennsluaðferðir og viðfangsefni þurfa því að vera fjölbreytt og sveigjanleiki í skólastarfi er nauðsynlegur.

Auk tónfræðigreina og forskólanáms er í boði fjölbreytt hljóðfæranám svo sem píanó, fiðla, lágfiðla, selló, þverflauta, gítar,harmonika og kontrabassi. Nemendur sem ljúka forskólanámi við skólann hafa að öllu jöfnu forgang að hljóðfæranámi.

Mikil áhersla er lögð á samspil nemenda og hafa margvíslegir samspilshópar og hljómsveitir verið starfræktir á vegum skólans. Tónleikahald hefur verið öflugt allt frá stofnun skólans og hafa nemendur skólans ávallt verið hvattir til að taka virkan þátt í flutningi tónlistar fyrir áheyrendur.



Starfsmenn

Edda Austman

Skólastjóri
edda@tongraf.is
c