Mynd af Alefli ehf

Alefli ehf



Alefli ehf. byggingaverktakar var stofnað í febrúar árið 1993 og hefur verið rekið og í eigu sömu aðila allt frá upphafi, eða í 20 ár. Þeir eru húsasmíðameistararnir Arnar Guðnason og Þorsteinn Kröyer.

Uppgangur í byggingariðnaði og fjölgun viðskiptavina í gegnum árin varð til þess að fyrirtækið stækkaði og árið 2003 bættist Magnús Þór Magnússon, húsasmíðameistari, í hóp eigenda, en hann hafði starfað hjá fyrirtækinu um árabil.

Starfsmann hafa margir hverjir starfað hjá fyrirtækinu til fjölda ára. Samanalagður starfsaldur helstu stjórnenda er því mjög hár samanborið við mörg önnur verktakafyrirtæki í byggingastarfsemi.



Gæðatrygging og öryggismál
Alefli hefur á undanförnum árum leitast við að auka og bæta enn frekar innra gæðaeftirlit fyrirtækisins. Til að byrja með voru verkefni Aleflis af þeim toga að fyrirtækið studdist mest við utanaðkomandi þjónustu gagnvart gæðaeftirliti á verkum sínum en með auknum umsvifum og fjölbreyttari verkefnum hefur þörfin aukist á innra gæðaeftirliti og hefur fyrirtækið brugðist við því með að tileinka sér viðurkennda vinnuferla og stuðst við gæðakerfi sem gefið er út af Samtökum iðnaðarins.



Starfsmenn

Magnús Þór Magnússon

Framkvæmdastjóri
magnus@alefliehf.is

Þorsteinn Kröyer

Arnar Guðnason

Ólafur Kristinn Magnússon

Verkefnastjóri
okm@alefliehf.is
c