Mynd af Friðrik A. Jónsson ehf

Friðrik A. Jónsson ehf

Lógo af Friðrik A. Jónsson ehf

Sími 5522111

Miðhraun 13, 210 Garðabær

kt. 5601750199

Friðrik A. Jónsson stofnaði fyrirtæki sitt árið 1942

Er fyrirtækið því orðið 70 ára árið 2012. Friðrik starfaði fyrst með útvarpstæki og kvikmyndasýningavélar, en síðan þróaði hann starfsemi sín yfir í fjarskipta, siglinga og fiskileitartæki. Fyrirtækið hefur verið leiðandi á sínu svið og verið í eigu sömu fjölskyldu þar til eigendur Marás keyptu það árið 2006.

Friðrik hóf samstarf við Willy Simonsen sem stofnaði Simonsen Radio a.s. í Noregi sem síðar fékk nafnið Simrad sem er eitt þekktasta merkið í sjávarútvegi í dag.
Á síldarárunum varð bylting í síldveiðum þegar Friðrik setti á Íslandsmarkað fyrsta Simrad sonarinn (Astik) sem á þeim tíma var settur í öll helstu síldveiðiskip á Íslandi og var upphaf að sterkri stöðu Friðriks A. Jónssonar ehf og Simrad á Íslandi.
Friðrik A. Jónsson ehf. hefur stöðugt bætt stöðu sína á markaðnum síðastliðin 70 ár með því að vera vakandi yfir nýjungum og velja umboð sem eru leiðandi á sínu sviði.


Innflutningur og þjónusta á siglinga- og fiskileitartækjum.

Umboð:

Simrad-fiskileitartæki

Norselight-ljóskastarar

Vingtor-kallkerfi

JMC-fiskleitartæki

Navico siglinga og fiskileitartæki

Northstar siglinga og fiskileitartæki

Lowrance siglinga og fiskileitartæki

Eagle siglinga og fiskileitartæki

Newcom-neyðarbaujur

Robertson-sjálfstýringar

Shipmate-siglinga- og fjarskiptatæki

OLEX-Þrívíddarplotter

Starfsmenn

Guðmundur Bragason

Framkvæmdastjóri
c